Ed Sheeran með aukatónleika í Laugardalnum

Eins og fjölmiðlar hafa greint frá þá seldist upp á tónleika breska tónlistarmannsins Ed Sheeran á einungis um tveimur og hálfum tímum. Tæplega þrjátíu þúsund miðar seldust og færri komust að en vildu. Aðdáendur sem ekki fengu miða geta nú tekið gleði sína á ný.

Tónleikahaldarinn Sena Live hefur nú staðfest að Ed Sheeran verður með aukatónleika á Laugardalsvelli þann 11. ágúst næstkomandi. Miðasalan á aukatónleikana hefst á föstudaginn klukkan níu á vefnum Tix.is.

Í boði eru fjögur verðsvæði:

– Standandi:      15.990 kr.     (stæði)

– Sitjandi C:       19.990 kr.     (græn hólf á mynd)

– Sitjandi B:       24.990 kr.     (blá hólf á mynd)

– Sitjandi A:       29.990 kr.     (rauð hólf á mynd)

Auglýsing

læk

Instagram