Ed Westwick úr Gossip Girl sakaður um nauðgun: „Ég vaknaði svo við að Ed var ofan á mér“

Athugið áður en þið lesið þessa frétt að í henni er að finna lýsingar á hræðilegu kynferðislegu ofbeldi. 

Leikkonan Kristina Cohen segir Ed Westwick, sem flestir þekkja úr þáttunum Gossip Girl, hafa nauðgað sér þegar hún var gestkomandi á heimili hans fyrir þremur árum. Kristina segir frá þessu í færslu á Facebook. Ed neitar ásökunum Kristinu.

Kristina segir í færslu sinni á Facebook að hún hafi í stuttan tíma verið að hitta framleiðanda sem var vinur Ed Westwick. „Þessi framleiðandi fór með mig heim til Ed þar sem ég hitti hann í fyrsta skipti. Ég vildi fara þegar Ed lagði til að við „myndum öll ríða“ en framleiðandinn vildi ekki láta Ed líða vandræðalega með því að fara,“ segir hún.

Hún segir að Ed hafi lagt til að þau myndu borða með honum kvöldmat en hún sagðist vera þreytt til að reyna að komast hjá boðinu. Ed bauð henni þá að leggja sig í gestaherbergi, sem hún gerði.

„Ég vaknaði svo við að Ed var ofan á mér og fingur hans voru inni í mér,“ segir hún.

Ég sagði honum að hætta en hann var sterkur. Ég reyndi að streitast á móti en hann greip um andlit mitt, hristi mig og sagðist vilja ríða mér. Ég var lömuð af ótta og gat hvorki talað né hreyft mig. Hann hélt mér niðri og nauðgaði mér.

Kristina segir að móður sína hafa látist úr krabbameini á þessum tíma og að hún hafi ekki haft styrk til að stíga fram og segja frá ofbeldinu. Þá hjálpaði framleiðandinn sem hún var að hitta ekki, kenndi henni um það sem gerðist og sagði að hún gæti ekki sagt neinum frá þar sem Ed myndi rústa ferli hans og sjá til þess að hún myndi aldrei starfa sem leikkona.

Hún ákvað að stíga fram í von um að hjálpa öðrum. „Ég vona að sagan mín og annarra hjálp til að uppræta þetta eitraða umhverfi og valdaójafnvægi sem hefur skapað þessi skrímsli.“

Ed Westwick neitar ásökunum Kirstinu í færslu á Instagram. „Ég þekki þessa konu. Ég hef aldrei þröngvað mér á neina konu og aldrei nauðgað,“ sagði hann.

Auglýsing

læk

Instagram