Auglýsing

Fimm ár frá því Jón hvarf sporlaust: Lögreglan vill ná tali af þeim sem sendu inn dularfullar ábendingar

Í dag eru fimm ár síðan Jón Þröstur Jónsson gekk út af hóteli í Dublin, að morgni laugardagsins 9. febrúar 2019, og sást ekki eftir það. Hann var þá 41 árs gamall.

DV greinir frá því að lögreglan í Írlandi vilji ná tali af þeim sem sendu inn dularfullar nafnlausar ábendingar um hvarf hans. Þá er einnig greint frá því að fjallað er um málið í írska ríkisútvarpinu í dag. Þar kemur fram að fjölskylda Jóns óski að nýju eftir hjálp við leitina að honum.

„Jón Þröstur hafði aðeins dvalist í um sólarhring í Dublin er hann hvarf. Hafði hann varið nóttinni á spilavíti hótelsins. Um morguninn kom unnusta hans til hans á hótelið, en hún tók flug sólarhring á eftir honum vegna vandræða með vegabréf. Stuttu eftir að hún kom á hótelið gekk Jón Þröstur út og sást ekki framar. Upptökur úr öryggismyndavélum sýndu hann ganga framhjá Higfield sjúkrahúsinu í átt að gatnamótum við Collins-breiðgötuna,“ segir í frétt DV um málið.

Skildi vegabréfið, veskið og símann eftir

Jón tók ekki með sér vegabréf, veski eða síma þegar hann gekk burtu frá hótelinu en írska lögreglan segist hafa kannað yfir 270 vísbendingar í málinu. Fjölmargir einstaklingar voru teknir í skýrslutöku og þá hafi lögreglan skoðað marga klukkutíma af efni úr öryggismyndavélum, allt frá því Jón mætti á hótelið umrædda og þar til hann gekk út og sást síðast í öryggismyndavél við götu í hverfinu.

Samkvæmt frétt írska ríkisútvarpsins hefur lögreglan þar í landi sérstakan áhuga á að ná tali af höfundi eða höfundum tveggja skilaboða sem henni hafa borist. Líkt og fram kemur í frétt DV er ekki greint frá því hvort um er að ræða rafræn skilaboð eða sendibréf. Eru höfndur eða höfundar skilaboðanna hvattir til að gefa sig fram við lögreglu og er þeim heitið fullum trúnaði.

Í frétt írska ríkisútvarpsins eru allir sem gætu haft upplýsingar um málið hvattir til að hafa samband við lögregluna. Hægt er að lesa umfjöllun írska ríkisútvarpsins með því að smella hér en í þeirri frétt má einnig sjá síðustu myndskeiðin sem náðust af Jóni áður en hann hvarf.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing