Fimm konur og fimm karlar geta orðið íþróttamaður ársins, listi yfir tíu efstu birtur

Samtök íþróttafréttamanna hafa greitt atkvæði í kjöri Íþróttamanns ársins 2016. Nú liggur fyrir hvaða tíu einstaklingar höfnuðu í efstu sætunum.

mbl.is greinir frá

Greint verður frá niðurstöðurnni í hófi Samtaka íþróttafréttamanna og ÍSÍ í Hörpu fimmtudagskvöldið 29. desember.

Þau sem koma til greina sem íþróttamaður ársins, í stafrófsröð:

Aníta Hinriksdóttir, frjálsar íþróttir
Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna
Aron Pálmarson, handbolti
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund
Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar
Martin Hermannsson, körfubolti
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna

Lið árs­ins:

A-landslið karla í knattspyrnu
A-landslið karla í körfubolta
A-landslið kvenna í knattspyrnu

Þjálfari ársins:
Dagur Sigurðsson
Guðmundur Þ. Guðmundsson
Heimir Hallgrímsson

Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir var valin íþróttamaður ársins 2015.

Auglýsing

læk

Instagram