today-is-a-good-day

Fjórir skólar draga sig úr Söngkeppni framhaldsskólanna, ósáttir við breytingar

Nemendafélög Framhaldsskólans á Laugum, Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, Menntaskólans á Tröllaskaga og Verkmenntaskóla Austurlands hafa dregið sig úr Söngkeppni framhaldsskólanna í ár vegna breytinga sem hafa orðið á keppninni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá formönnum nemendafélaganna.

Stærsta breytingin á keppninni í ár er sú að 12 skólar verða valdir af dómnefnd til þátttöku í aðalkeppninni, sem verður í beinni útsendingu á RÚV. Skólar sem senda inn atriði greiða þátttökugjöld óháð því hvort þeir komist í keppnina eða ekki.

Í yfirlýsingunni kemur fram að með þessari ákvörðun séu nemendafélögin að láta í ljós óánægju sína með fyrirhugaðar breytingar á keppninni í ár. „Augljóst er að hið nýja fyrirkomulag kemur sér sérstaklega illa fyrir litla skóla á landsbyggðinni,“ segir þar.

Fyrir nemendafélög með takmarkaðan fjárhag þá er þátttökugjaldið alltof hátt, sérstaklega í ljósi þess að við séum einungis að greiða fyrir það að senda upptöku af atriðinu og aðgang að æfingahelginni.

Þá kemur fram að nemendafélögin séu mjög ósátt með það að ekkert tillit sé tekið til aukakostnaðar sem að lendir á nemendafélögum skóla af landsbyggðinni við það að senda keppendur tvisvar til Reykjavíkur bæði á æfingahelgi og í aðalkeppnina.

„Með þessu fyrirkomulagi sitja skólar af höfuðborgarsvæðinu og skólar af landsbyggðinni ekki við sama borð og skólum er mismunað eftir landfræðilegri staðsetningu,“ segir í yfirlýsingunni.

„Einnig erum við mjög ósátt með það að einungis 12 keppendur fá tækifæri til þess að stíga á svið og koma fram í sjónvarpi. Við teljum þetta fyrirkomulag ekki stuðla að því að keppnin verði stökkpallur fyrir unga og efnilega listamenn til að koma sér á framfæri eins og markmið keppninnar ætti að vera.

Við sjáum ekki hag okkar í því að taka þátt í söngkeppni framhaldsskólanna þetta árið og munum við ekki endurskoða ákvörðun okkar fyrr en viðeigandi breytingar verða gerðar.“

Yfirlýsingin kemur í kjölfarið á því að Verkmenntaskólinn á Akureyri dró sig úr keppni á dögunum. Í kjölfarið lýsti þó sigurvegari söngkeppninnar þar vilja á að taka þátt í aðalkeppninni og Samband íslenskra framhaldsskólanema hyggst hjálpa henni við það.

Steinunn Ólína Hafliðadóttir, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF), sagði í samtali við Nútímann í vikunni að komið hafi verið á fót styrktarnefnd til að hjálpa skólum að safna fyrir þátttöku í keppninni. Allir skólar fái að taka þátt í sérstakri æfingarhelgi þar sem dómarar verða á svæðinu og verður frammistaða þar á meðal þess sem tekið verður til greina þegar atriði verða valin í aðalkeppnina.

Í yfirlýsingu á vef SÍF kemur fram að Söngkeppnin hafi undanfarin ár verið rekin með miklu tapi.

„Söngkeppnin hefur síðastliðin ár verið unnin í samstarfi á milli SagaFilm og SÍF. Í upphafi á skipulagningu söngkeppninnar 2016 var framkvæmdarstjórn SÍF tjáð að SagaFilm gæti ekki staðið undir kostnaði keppninnar ef hún kæmi ár eftir ár í milljóna mínus. Breytt fyrirkomulag keppninnar er því vegna óskar okkar um að halda keppninni lifandi,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar segir að breytingar á þátttökugjaldi séu gerðar til að passa að þessi stökkpallur fyrir unga og efnilega söngvara glatist ekki. Allir skólarnir 30 greiða 40 þúsund króna þátttökugjald sem gefur þeim aðgang að æfingarhelgi SÍF. Þar fá þátttakendur framkomunamskeið frá Glowie, hljómsveitaræfingu, hárgreiðslu og förðun, myndatöku og innslög.

„Við skiljum vel að nemendafélög Framhaldsskólanna eru misvel stæð og hefur framkvæmdarstjórn SÍF því í fyrsta sinn skipað fjáröflunarteymi til að koma til móts við kostnað nemendafélaga við söngkeppnina,“ segir í yfirlýsingunni.

„Okkar markmið er að gera snið keppninnar sjálfbært og straumlínulagað svo að Söngkeppnin geti verið haldin ár eftir ár. Keppnin er, eins og segir, stökkpallur fyrir unga og efnilega söngvara sem eru í þínu nemendafélagi. Við myndum harma það ef að tækifæri líkt og þetta, glatist.“

Auglýsing

læk

Instagram