today-is-a-good-day

Fleiri en tuttugu rapparar stíga á svið og flytja remix af laginu Skólarapp

Dagur rauða nefsins hjá UNICEF nær hámarki í kvöld í skemmti- og söfnunarþætti í beinni útsendingu á RÚV. Útsendingin hefst strax að loknum kvöldfréttum klukkan 19:40 og munu grínistar, leikarar, fjölmiðlafólk og tónlistarmenn búa saman til ógleymanlegt kvöld og skora um leið á fólk að hjálpa börnum og gerast heimsforeldrar UNICEF. Á degi rauða nefsins síðastliðin ár hafa þúsundir Íslendinga bæst í hóp heimsforeldra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF.

Sjá einnig: Edda Björk og Gunnar hreyfðu mjaðmirnir af miklum þokka á sviðinu

Yfir tvö hundruð manns koma fram í þættinum. Meðal þeirra eru Kött Grá Pje sem flytur lag dags rauða nefsins, Sturla Atlas sem hannaði rauða nefið í ár, Danshópurinn Grrrrls, Páll Óskar, Improv Ísland og íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Hugleikur Dagsson frumflytur endurgerð á laginu „Hvar er draumurinn?“ með Sálinni hans Jóns míns ásamt nýju boy-bandi hans Never2L8, og frumflutt verður splunkunýtt remix sem Helgi Sæmundur og Auður gerðu af laginu Skólarapp en í atriðinu koma fram fleiri en 20 rapparar.

Auk þess verður sýnt frá ferð Sigríðar Thorlacius til Bangladess þar sem hún kynnti sér aðstæður barna og baráttu UNICEF fyrir velferð þeirra og réttindum. Innslög frá Gísla Einarssyni í Írak verða enn fremur í þættinum.

Sjá einnig: Söngvari Kriðpleirs lagði áherslu á innlifun og einlægni í flutningi sínum

Aðalkynnar kvöldsins eru þau Gísli Marteinn Baldursson og Halla Oddný Magnúsdóttir en þau Sigyn Blöndal, Andri Freyr Viðarsson og Björg Magnúsdóttir munu standa vaktina í símaveri Vodafone. Dagskrárgerð er í höndum Egils Eðvarðssonar. Þá munu um fimmtíu sjálfboðaliðar svara í símann í símaverinu á meðan á þættinum stendur.

Saga Garðarsdóttir og Dóra Jóhannsdóttir eru grínstjórar dagsins og Tjarnargatan framleiðir grínefnið. Þar á bæ hefur fólk setið við langt fram á nætur að klippa grín og glens. Auglýsingastofan Jónsson og Le‘macks vann að markaðsátaki dagsins og það eru Vodafone, Lindex á Íslandi og Kvika sem greiða kostnaðinn vegna framleiðslu og markaðssetningar.

Með átakinu vill UNICEF skemmta fólki og vekja um leið athygli á að heimsforeldrar og UNICEF berjast saman fyrir betri heimi fyrir öll börn.

Auglýsing

læk

Instagram