Floyd Mayweather skoðar sig um í MMA-hring og Conor McGregor er fljótur að bregðast við

Myndband sem sýnir boxarann Floyd Mayweather skoða sig um í MMA-búri hefur vakið talsverða athygli á Twitter. Þegar þetta er skrifað hafa milljónir horft á myndbandið sem má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Floyd Mayweather boxar við karla en lemur konur

Fólk veltir skiljanlega fyrir sér hvað þetta þýði ef þetta þýðir eitthvað. Floyd mætti bardagakappanum Conor McGregor í boxbardaga í ágúst í fyrra en það verður að teljast ólíklegt að hann stígi inn í hringinn á ný og taki bardaga í blönduðum bardagalistum á móti Conor.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan

Og Conor brást svona við

Auglýsing

læk

Instagram