Fólk sem mígur og skítur á almannafæri á Suðurlandi þarf að þrífa upp eftir sig

Fólk sem verður gripið við að ganga örna sinna eða kasta af sér þvagi á almannafæri á Suðurlandi verður gert að hreinsa upp eftir sig. Þetta kemur fram í nýrri lögreglusamþykkt sem sveitarfélögin á Suðurlandi hafa samþykkt.

Myndband: Ferðamaður gengur örna sinna tíu metrum frá Reykjanesbraut

Salernismál ferðamanna hafa skotið reglulega upp kollinum í umræðunni eftir að ferðamannastraumur til landsins margfaldaðist. Frægt er þegar ferðamaður gekk örna sinna rétt hjá póstkassa Fljótsdal í Fljótshlíð en hann var aðeins 50 metrum frá góðri salernisaðstöðu á farfuglaheimili. Bóndinn Þorkell Daníel Eiríksson birti myndir af ferðamanninum á Facebook og vöktu þær mikla athygli.

Unnið er að því að koma upp salernum víða um land en sveitarfélög á Suðurlandi ætla augljóslega að snúa vörn í sókn með lögreglusamþykktinni. Í 13. grein lögreglusamþykktarinnar segir orðrétt að ekki megi ganga örna sinna eða kasta af sér þvagi á almannafæri eða á lóð, land eða híbýli annars manns. „Hver sem það gerir skal hreinsa upp eftir sig,“ segir þar ennfremur.

Ekki liggur fyrir með hvaða hætti þessari reglu verður framfylgt.

Auglýsing

læk

Instagram