Formlegar viðræður um meirihluta í Reykjavík að hefjast og Eyþór er ekki sáttur

Formlegar viðræður Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um myndun meirihluta í Reykjavík hefjast í dag. Þetta kom fram í sameiginlegri tilkynningu frá flokkunum fjórum.

Í tilkynningunni kom fram að óformlegar viðræður oddvita Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um málefnagrunn hafi leitt til þeirrar sameiginlegu niðurstöðu að hefja formlegar meirihlutaviðræður. Tveir fulltrúar frá hverjum flokki taka þátt í viðræðunum.

„Markmiðið er að samstarfssáttmáli nýs meirihluta liggi fyrir í góðum tíma fyrir fyrsta borgarstjórnarfund nýrrar borgarstjórnar 19. júní nk.
Trúnaður mun ríkja um viðræðurnar en niðurstöður þeirra verða kynntar þegar þær liggja fyrir,“ segir í tilkynningunni.

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er ekki sáttur og í samtali við Vísi segir hann að um slæmar fréttir fyrir borgarbúa sé að ræða.  „Því þarna er verið að reyna að reisa við þennan meirihluta sem að borgarbúar höfnuðu eftirminnilega,“ segir hann.

Auglýsing

læk

Instagram