Hér eru þjóðirnar sem komust áfram í Eurovision

Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í Austurríki í kvöld. Löndin sem komust áfram voru Albanía, Armenía, Rússland, Rúmenía, Ungverjaland, Grikkland, Eistland, Georgía, Serbía og Belgía.

Hvorki Finnar né Danir komust áfram og Felix Bergsson, þulur keppninnar á RÚV, sagði það mjög óvenjulegt og ekki það sem fólk bjóst við.

María Ólafs stígur á svið á fimmtudagskvöld og flytur lagið Unbroken.

Auglýsing

læk

Instagram