Hera Hilmars í stóru hlutverki í nýjum spennutrylli, leikur á móti Ben Kingsley

Leikkonan Hera Hilmarsdóttir leikur eitt aðalhlutverkanna í spennutryllinum An Ordinary Man. Mótleikari hennar verður Óskarsverðlaunahafinn Ben Kingsley en Hera leikur þjónustustúlku sem vingast við eftirlýstan stríðsglæpamann. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Tökur fara fram í Belgrad í Serbíu. Á vef RÚV kemur fram að myndin hafi verið á teikniborðinu síðan árið 2009 en upphaflega stóð til að Liam Neeson færi með hlutverk stríðsglæpamannsins.

Í myndinni vingast persóna Kingsley við persónu Heru. Þegar leitin að honum virðist vera skila árangri áttar hann sig á því að eina manneskjan sem hann getur treyst er hún.

Hera hefur gert það gott í þáttunum Da Vinci’s Demons en hér heima sáum við hana síðast í Vonarstræti eftir Baldvin Z.

Auglýsing

læk

Instagram