Hótaði Rich Piana og Söru Heimis lífláti: „Ég tók byssuna með mér í ræktina“

Söru og Rich Piana bárust á dögunum líflátshótanir í gegnum samfélagsmiðla sína. Hótanirnar voru svo margar að Sara þorði varla út úr húsi og Rich Piana hóf að ganga um með byssu á sér.

Sjá einnig: Stórkostlegustu augnablikin úr brúðkaupi Rich Piana og Söru Heimis

Sara er Heimisdóttir og giftist líkamsræktartröllinu Piana á síðasta ári, eins og fjallað var um í fjölmiðlum. Hann fjallar um málið á Youtube-síðu sinni þar sem hann birtir dagleg myndbönd um líf sitt. Aðdáendahópur hans er stór en hundruð þúsunda fylgja honum á Youtube og Instagram.

„Ég var mjög varkár og Sara var mjög skelkuð,“ segir Rich Piana í myndbandinu á Youtube.

Þeir voru ekki aðeins að hóta mér heldur líka henni. Fólk hafði skrifað hatursummæli um hana áður en enginn hafði hótað henni lífláti. Hún vildi ekki fara út fyrir hússins dyr og ætlaði að loka Instagram-síðunni sinni.

Hann segist hafa sannfært hana um að hætta við að loka síðunni. „Ég tók byssuna með mér í ræktina og var mjög varkár. Ég þurfti allstaðar að líta í kringum mig. Það er ekkert grín þegar manni er hótað lífláti,“ segir hann.

Fjölmargir aðgangar á samfélagsmiðlum voru notaðir til að hóta þeim, að sögn Piana. Hann fann þó út að margir aðgangarnir reyndust vera gerviaðgangar og síðar kom í ljós að einn maður stóð að baki hótunum.

Hann reyndist vera maður sem glímir við andlega fötlun og vildi fá styrk frá fyrirtæki Rich Piana; 5% Nutrition sem framleiðir fæðubótarefni. Piana hefur að eigin sögn fyrirgefið manninum.

Hér má sjá Rich Piana útskýra málið á sinn einstaka hátt

Auglýsing

læk

Instagram