Kærasta Rich Piana ávarpar aðdáendur hans: Ekkert kókaín á borðinu, bara pre workout

Vaxtaræktarmaðurinn Rich Piana, fyrrverandi tengdasonur Íslands, lést í síðustu viku. Hann var 46 ára gamall. Rich var um tíma kvæntur Söru Heimisdóttur en leiðir þeirra skildu á síðasta ári eftir árs hjónaband.

Rich átti fjölmarga aðdáendur og hélt úti vinsælli rás á Youtube þar sem hann leyfði aðdáendum sínum að fylgjast með lífi sínu og Chanel Renee, kærustu sinnar. Chanel birti skilaboð til aðdáenda Rich á Youtube-rásinni í dag en þar vísar hún á bug að eiturlyf hafi komið við sögu þegar kærasti hennar lést. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Chanel lýsir því hvað gerðist kvöldið örlagaríka þegar sjúkraliðar voru kallaðir á heimili þeirra í Flórída. Hún var að klippa hár Rich þegar hann virtist fá einhvers konar aðsvif. Hún reyndi að koma honum til bjargar en hann komst aldrei til meðvitundar aftur.

Í fyrstu fréttum af málinu kom fram að hvítt efni hafi fundist á heimili þeirra. Chanel hafnar að um kókaín hafi verið að ræða og segir að Rich hafi tekið pre workout-duft í nefið fyrir lyftingaæfingar.

Auglýsing

læk

Instagram