Segir af og frá að Rich Piana hafi verið undir áhrifum fíkniefna þegar hann missti meðvitund

Joe Pietaro, útgefandi tímaritsins Muscle Sport, fullyrðir að eiturlyf hafi ekki komið við sögu þegar Rich Piana var fluttur meðvitundarlaus á spítala í síðustu viku. Hann segir að ástand Rich sé stöðugt. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Rich Piana var á árum áður pistlahöfundur á Muscle Sport. Hann var á tímabili kvæntur vaxtaræktarkonunni Söru Heimisdóttur. En þau skildu síðasta sumar eftir árs hjónaband. Rich er afar vinsæll á samfélagsmiðlum en hundruð þúsunda fylgja honum á Instagram og Youtube.

Samkvæmt fréttum TMZ voru sjúkraflutningamenn voru kallaðir á heimili Rich og kærustu hans, Chanel Renee, að kvöldi mánudags. Þegar þau komu á staðinn var Rich meðvitundarlaus og í fréttum kom fram að talið væri að hann hafi tekið of stóran skammt af lyfjum. Ekki kemur fram hvaða lyfjum.

Um helgina greindi TMZ svo frá því að hvítt duft og mikið magn af sterum hafi fundist á heimili parsins. Chanel sagðist ekki kannast við að Piana hefði átt við fíkniefnavandamál að stríða en sagði að hann hafi notað stera í rúm 20 ár.

Atvik málsins voru þau að Rich missti meðvitund þegar Chanel var að klippa á honum hárið. Við það féll hann  í gólfið og hlaut höfuðhögg. Joe Pietaro segir að Rich hafi ekki verið undir áhrifum fíkniefna þegar atvikið átti sér stað.

Hann segir lækna vonast til þess að Rich jafni sig að fullu og segir að ástand hans sé stöðugt.

Auglýsing

læk

Instagram