Huldumaður pissar ítrekað í ruslafötur á skrifstofu Morgunblaðsins: „Það eru ótal klósett í húsinu“

Ítrekað hefur verið pissað í ruslafötu á 1. hæð Morgunblaðsins í Hádegismóum. Þetta kemur fram í tölvupósti frá mannauðsstjóra Árvakurs til starfsfólks en fjallað erum póstinn á Vísi.

Mannauðsstjórinn Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, sendi frá sér póst til starfsfólks með yfirskriftinni: „Pissað í ruslafötu“.

„Eins og heiti tölvupóstsins gefur til kynna hefur einhver ítrekað pissað í ruslafötu á 1. hæðinni,“ segir í póstinum sem birtur er á Vísi. „Það eru ótal klósett í húsinu, vinsamlegast notið þau.“

Auglýsing

læk

Instagram