Hvítur hvítur dagur framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Rétt í þessu var tilkynnt um tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og Hvítur hvítur dagur er framlag Íslands í ár. Tilnefningin er fyrir Hlyn Pálmason, leikstjóra og handritshöfund, og Anton Mána Svansson framleiðanda hjá Join Motion Pictures sem var viðstaddur tilkynninguna í Haugesund í kvöld en þetta er þriðja árið í röð sem hann er tilnefndur (Vetrarbræður og Hjartasteinn).

Myndin fjallar um lögreglustjórann Ingimund sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Hann einbeitir sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst.

Með önnur helstu hlutverk myndarinnar fara þau Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elíasdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Arnmundur Ernst Bachman, Þór Tulinius og Sverrir Þór Sverrisson. Myndin er framleidd af Join Motion Pictures og Sena sér um dreifingu hennar á Íslandi.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dönsk/íslensku Vetrarbræður, sem kom út árið 2017 og fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningu í aðalkeppni Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss.

Auglýsing

læk

Instagram