Ísland tapaði fyrir Sviss á EM í Hollandi

Sviss vann Ísland með tveimur mörkum gegn einu á Evrópumótinu í fótbolta í Hollandi í dag.

Fanndís Friðriksdóttir skoraði mark Íslands eftir frábæra sendingu frá Dagnýju Brynjarsdóttur. Þær svissnesku jöfnuðu leikinn í lok fyrri hálfleiks og komust svo yfir snemma í fyrri hálfleik.

Næsti leikur Íslands er gegn Austurríki á miðvikudag.

Auglýsing

læk

Instagram