John Oliver hakkar FIFA í sig …Aftur!

Sex stjórn­end­ur FIFA voru handteknir í síðustu viku og eru sakaðir um að hafa þegið tugi millj­óna Banda­ríkja­dala í mút­ur und­an­farna ára­tugi.

Um tvær rannsóknir er að ræða. Önnur teng­ist ára­tuga löngu fjár­svika­máli en hin mútu­greiðslum í tengsl­um við ákvörðun um að halda HM í knatt­spyrnu í Rússlandi 2018 og Kat­ar 2022.

Sjá einnig: Örskýring um FIFA-málið

John Oliver hreinlega hakkaði FIFA í sig í þætti sínum, Last Week Tonight, í gærkvöldi. Hann rekur málið á sinn einstaka hátt og varpar á það nýju ljósi.

Loks segist hann vera tilbúinn að ganga ansi langt ef Sepp Blatter, sem var kjörinn forseti FIFA í fimmta skipti í röð á föstudag, verður látinn fara.

Þetta er stórkostlegt. Horfið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram