Justin Bieber leigði Skautahöllina í Laugardal en mætti svo aldrei

Justin Bieber tók Skautahöllina í Laugardal á leigu í gærkvöldi frá klukkan 20.30. Þetta kemur fram á vef DV. Þar kemur fram að Bieber hafi ætlað að spila hokkí í skautahöllinni. Hann mætti hins vegar aldrei.

Sjá einnig: Stemningin á Reykjavíkurflugvelli þegar æstir aðdáendur biðu eftir Justin Bieber

Justin Bieber lenti á Reykjavíkurflugvelli í einkaþotu í gær. Hann var með íshokkíbúnað með sér eins og aðdáendur hans sem mættu á flugvöllinn í gær tóku eftir.

DV greinir frá því að foreldrar barna og unglinga, sem áttu að vera á æfingum í skautahöllinni í gærkvöldi, hafi fengið póst um að æfingar myndu falla niður af óviðráðanlegum ástæðum í gærkvöldi.

Þá kemur fram að mikill viðbúnaður hafi verið á svæðinu og að lögreglan hafi á tímabili lokað veginum að skautahöllinni.

Auglýsing

læk

Instagram