Kanye kominn heim

Rapparinn Kanye West hefur verið útskrifaður af UCLA-sjúkrahúsinu. Talið er að hann hafi verið lagður inn vegna geðrænna vandamála sem læknar töldu að meðal annars mætti rekja til ofþreytu. Þetta kemur fram á vef BBC.

Kanye sást yfirgefa sjúkrahúsið ásamt Kim Kardashian, eiginkonu sinni og lækninum Micahel Farzam, lækni sínum. West var lagður inn á sjúkrahús í síðustu viku og aflýsti í kjölfarið öllum tónleikum sínum á Saint Pablo-tónleikaferðalaginu.

Skömmu áður en West var lagður inn vakti hann athygli fyrir að gagnrýna Jay-Z, Beyoncé Knowles, Hillary Clinton og Mark Zuckerberg harðlega á tónleikum.

Auglýsing

læk

Instagram