Kanye West fór 30 sinnum í sturtu þegar hann hætti með Amber Rose: Rose svarar fyrir sig

Hollywood nötrar vegna rifrildis Kayne West og Kardashian-fjölskyldunnar annars vegar og Amber Rose, fyrrverandi kærustu West, hins vegar. Nútíminn kafaði ofan í málið.

Það var á föstudag sem Kanye West mætti í viðtal í þáttinn The Breakfast Club á útvarpsstöðinni Power 105,1. West fór um víðan völl, spjallaði um nýju Yeezy Boost strigaskóna sem hann hefur sent frá sér í samstarfi við Adidas og sambandið við eiginkonu sína og barnsmóður, Kim Kardashian.

Twitter fór hins vegar á hliðina þegar Amber nokkur Rose var nefnd á nafn. Þá féllu þessu frægu ummæli um sturturnar 30 sem hann fór í eftir að hann hætti með henni um árið.

Rose hefur átt í opinberum útistöðum við systurnar Kylie Jenner og Khloe Kardashian undanfarið. Talað erum að Jenner sé að hitta rapparann Tyga en hann á barn með bestu vinkonu Rose, fatafellunni Blac Chyna.

Rose fann sig knúna til að taka Kylie Jenner fyrir í viðtali í títtnefndum útvarpsþætti, The Breakfest Club.  Þar sagði hún að hin 17 ára gamla Jenner væri barn sem þyrfti að fara í rúmið klukkan sjö á kvöldin og að Tyga ætti að skammast sín.

Það er bara mín skoðun. Hann á fallega konu og barn sem hann yfirgaf fyrir 16 ára stelpu sem er nýorðin 17.

Þá tók Khloe, systir Kylie, til sinnar ráða á Twitter og varði systur sína.

Rose benti þá á að ferill Kim Kardashian hófst nánast með útgáfu á kynlífsmyndbandi.

Kanye West var spurður út í rifrildið í The Breakfest Club og sagði að Rose væri bara að baða sig í sviðsljósinu.

„Ef Kim hefði byrjað með mér þegar ég vildi væri engin Amber Rose,“ sagði hann og bætti við að hann hefðu þurft að fara 30 sinnum í sturtu þegar hann hætti með Rose áður en hann gat byrjað að hitta aðrar konur.

Rose komst einmitt á kortið þegar hún var að hitta West árið 2008 en þau hættu saman árið 2010. West byrjaði svo með Kardashian árið 2012 en var búinn að vera að reyna við hana í mörg ár, jafnvel á meðan hann var með Rose.

Og Rose er ekki hætt:

Nú erbara spurningin: Hvað gerist næst?

Auglýsing

læk

Instagram