Kim Kardashian kynnir nýja hárgreiðslu með seríu af djörfum myndum og Lindsay Lohan er ringluð

Enginn kann betur að snúa Internetinu á hvolf en Kim Kardashian.

Hún frumsýndi nýja hárgreiðslu á dögunum sem hún kallar: „Bo Derek braids“ eða: „Fléttur Bo Derek“. Hún var svo harðlega gagnrýnd fyrir að eigna hvítri konu þessa greiðslu blökkukvenna en lét vera að svara gagnrýninni.

Þangað til í dag þegar hún birti djarfar myndir á Instagram, kynnti sig sem Bo West og í textanum sem fylgdi einni af myndunum gaf hún í skyn að hún léti gagnrýnina ekki hafa mikil áhrif á sig.

View this post on Instagram

Hi, can I get zero fucks please, thanks

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on

Og hver önnur en Lindsay Lohan skildi hvorki upp né niður í þessari gömlu vinkonu sinni. Slúðurbloggarinn Perez Hilton birti skjáskot sem sýndi Lindsay skilja eftir athugasemdina: „Ég er ringluð“ undir mynd af Kim með nýju greiðsluna. Kim var ekki lengi að svara og sagði: „Veistu hvað er ruglingslegt? Erlendi hreimurinn þinn.“

Var Kim að vísa í að Lindsay Lohan var skyndilega farin að tala með erlendum hreim á dögunum, eitthvað sem fólk skildi ekki. En Lindsay hefur svo sem aldrei bundið bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir.

En öll augu beinast eins og venjulega að Kim, sem birti þessar myndir og virðist ekki ætla að láta gagnrýni á nýju hárgreiðsluna hafa áhrif á sig.

https://www.instagram.com/p/BejO55cl_tX/?taken-by=kimkardashian

View this post on Instagram

BO WEST

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on

https://www.instagram.com/p/BejK5AaFvpV/?taken-by=kimkardashian

Auglýsing

læk

Instagram