Kolklikkuð kría dritar á dreng í Arnarfirði: Óhugnaleg árásin náðist á myndband

Klikkuð kría dritaði beint í hár og andlit pilts sem var ásamt vinum sínum að mynda sólsetrið í Arnarfirði á filmu í gærkvöldi. Myndband af árásinni má sjá hér fyrir neðan. Þetta kemur fram á Vísi.

Pálína Margrét Þrastardóttir segir í samtali við Vísi að hópurinn hafi stöðvað bílinn við Hvestusand, skammt utan við Bíldudal. Þau ætluðu að ganga í átt að flæðarmálinu þegar tvær óðar kríur stöðvuðu för þeirra.

Þetta er það fyndnasta sem við höfum lent í og erum búin að hlæja að þessu núna í tíu tíma. Við gátum ekki hleypt honum inn í bílinn aftur því við hlógum svo mikið.

Myndbandið á sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram