Lagt til að þjóðkirkjan eyði 150 milljónum í að lokka til sín nýja meðlimi

Þjóðkirkjan þarf að eyða 150 milljónum á næstu fimm árum í að efla fræðslu-, kynningar- og fjölmiðlastarf sitt. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps sem skipaður var á Kirkjuþingi í fyrra og átti að gera tillögur um hvern megi fjölga meðlimum í þjóðkirkjunni. Fréttablaðið fjallar um skýrsluna sem lögð var fyrir Kirkjuþing þjóðkirkjunnar um helgina.

„Boðun og predikun kirkjunnar nær ekki til almennings með nægilega áhrifamiklum hætti, þegar hún er orðin hornreka hjá RÚV og lítt áberandi á öðrum fjölmiðlum og á mannamótum öðrum en kirkjulegum athöfnum og messum,“ segir í skýrslunni.

Þá er bent á að þjóðkirkjufólki hafi fækkað um átta þúsund á einum áratug. 73,6 prósent þjóðarinnar teljast til þjóðkirkjunnar miðað við 84,6 prósent á árinu 2005 samkvæmt nýlegum tölum Hagstofunnar.

Sjá einnig: Úr hverju hefur Þjóðkirkjan að spila?

Fréttablaðið bendir á að í skýrslunni er vitnað í grein Rúnars Vilhjálmssonar prófessors þar sem kemur meðal annars fram að kirkjan hafi ekki fundið svör við nútímavæðingunni og sé nú „hjásett“ sem stofnun.

Eftir aldamót hafa svo skotið upp kollinum félög sem leggjast beinlínis gegn þjóðkirkjunni og kristinni trú. Slík félög hafa verið áberandi á seinni árum og rödd þeirra verið hávær, bæði í gegnum fjölmiðla sem og fótgönguliða sem fara um og hvetja til úrsagnar úr þjóðkirkjunni – og ganga með þar til gerð eyðublöð á sér – á sama tíma og hvatt er til skráningar í þeirra eigin félög.

Í Fréttablaðinu kemur einnig fram að tillögur starfshópsins eigi að draga úr fækkun sóknarbarna og stuðla að nýliðun innan þjóðkirkjunnar.

Auglýsing

læk

Instagram