Leikarinn John Heard látinn

Leikarinn John Heard er látinn. Hann var 72 ára gamall. Heard var þekktastur fyrir hlutverk sín í fjölmörgum kvikmyndum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og lék hann meðal annars pabbann í Home Alone-myndunum.

Heard fannst látinn í hótelherbergi sínu í Palo Alto í Kaliforníu. Þetta kemur fram á vefmiðlinum TMZ. Þerna kom að honum og var lögregla kölluð á staðinn. Ekki er ljóst hvernig hann lést en hann var að jafna sig eftir bakaðgerð sem hann gekkst undir á miðvikudag, samkvæmt TMZ.

Auglýsing

læk

Instagram