Lög­reglan leitar að þjófi sem er alveg eins og Ross í Fri­ends

Lög­reglan í Blackpool á Eng­landi leitar nú að manni sem talinn er hafa stolið bjór­kassa í verslun í borginni. Það sem þykir merkilegt við manninn er að hann er sláandi líkur banda­ríska leikaranum David Schwimmer.

Flestir þekkja Schwimmer sem Ross í Friends sjón­varps­þáttum en notendur Facebook voru ekki lengi að benda á líkindin eftir að lögreglan birti mynd af manninum.

Eftir margar ábendingar sá lögreglan engan annan kost en að fullvissa fólk um að þetta væri ekki David Schwimmer. „Við þökkum fyrir skjót svör. Við höfum kannað málið vel og getum full­yrt að David Schwimmer var staddur í Banda­ríkjunum þennan dag,“ sagði lögreglan.

Hvað er Ross að brasa?

https://www.facebook.com/BlackpoolPolice/photos/a.382639948432987/2132566913440273/?type=3&theater

Auglýsing

læk

Instagram