Lögreglan ók niður bíl til að stoppa eftirför í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti klukkan laust fyrir þrjú í nótt að hefja eftirför eftir bíl sem svaraði ekki merkjum lögreglu um að stöðva.

Maðurinn sem var undir áhrifum fíkniefna jók hraðann til að koma sér undan lögreglunni sem endaði með því að ekið var utan í bílinn við Bakkabraut en þar lauk eftirförinni.

Ökumaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Auglýsing

læk

Instagram