Maður lést um borð í flugvél Wow Air á leiðinni til Keflavíkur

Maður lést um borð í flugvél Wow Air á leiðinni frá Frankfurt til Keflavíkur í gær. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurnesjum í samtali við Nútímann.

Lögregla telur ekkert óeðlilegt við andlát mannsins sem var um sjötugt. Um erlendan mann er að ræða og hann var einn á ferð, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Maðurinn var á leiðinni til Bandaríkjanna samkvæmt heimildum Nútímans og hugðist millilenda á Íslandi.

Auglýsing

læk

Instagram