today-is-a-good-day

María Birta birtir mynd af sér á tökustað Once Upon A Time In Hollywood

Íslenska leikkonan María Birta Bjarnadóttir leikur í nýjustu mynd leikstjórans Quentin Tarantino, Once Upon A Time In Hollywood. Hún hefur nú birt mynd af sér á tökustað myndarinnar.

Sjá einnig: María Birta leikur Playboy kanínu í nýjustu kvikmynd Tarantino

María Birta, sem fer með hlutverk Playboy kanínu í myndinni, sagði í samtali við Vísi á sínum tíma að það hafi verið mikill heiður að hafa fengið að taka þátt í þessu meistaraverki. Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum á dögunum og hefur fengið góða dóma. Hún verður frumsýnd hér á landi 16. ágúst.

Sjá einnig: Klöppuðu í sjö mínútur eftir frumsýningu Once Upon A Time In Hollywood á Cannes

María greinir frá því á Facebook að teymi Tarantino hafi ákveðið að birta myndina á opinberri síðu þeirra. Hún hafi ekki mátt taka neinar myndir sjálf og því sé gaman að eiga eina mynd af tökustað.

Auglýsing

læk

Instagram