María Ólafs í góðu yfirlæti í Vín: Nuddarinn bað um selfí í miðju nuddi

Nuddari sem nuddaði Maríu Ólafs í Vín á dögunum gat ekki stillt sig um að biðja um selfí með henni á meðan á nuddinu stóð. Þetta kemur fram í viðtali við Maríu Ólafs í dag á Youtube-rás Vodafone.

Viðtalið má sjá hér fyrir neðan.

María ræðir um lífið úti í Austurríki í viðtalinu og segir meðal annars frá hótelinu. „Það er góð aðstaða hérna. Það er hægt að fara í nudd, gufu og spa og allskonar hérna,“ segir hún.

Sjá einnig: Gylltar tær Maríu stálu senunni á rauða dreglinum

Hún segir það hafa verið mjög fyndið þegar nuddarinn óskaði eftir myndatökunni en hún tók því létt.

Ég var bara oh my god. Er hann í alvöru að spyrja mig í miðju nuddi?

Nuddarinn fékk svo myndina en ekki fyrr en eftir á. „Þegar ég var búin að klæða mig,“ segir María hlæjandi.

María Ólafs stígur á svið á fimmtudaginn í næstu viku í seinni forkeppni Eurovision og flytur framlag Íslands, Unbroken.

Auglýsing

læk

Instagram