Mariusz flutti til Íslands skömmu fyrir hrun og vann tvær vinnur: „Stundum var ekki sofið meira en tvo þrjá tíma á nóttu“

„Ég er mjög ánægður með starf mitt hjá Steypustöðinni, mikil fjölbreytni og ég hef himininn fyrir ofan mig. Ég þarf helst að vera utandyra annars finnst mér ég ekki vera frjáls maður,“ segir Mariusz Jurkowski sem flutti til Íslands frá Póllandi skömmu fyrir hrun. Hann réði sig í starf í sælgætisverksmiðju hér á landi og starfaði þar í fimm ár áður en hann söðlaði um. Mariusz segir frá lífi sínu á Íslandi  í viðtalsröðinni „Fólkið í Eflingu.“

Mariusz vann í sælgætisverksmiðjunni ásamt konu sinni en þau fengu einnig bæði aukastarf hjá þrifafyrirtækinu ISS. „Þá var farið beint úr verksmiðjunni í leikskóla sem við þrifum og þaðan í grunnskóla sem var líka þrifin fram að síðustu strætóferð sem við tókum heim. Þegar við komum heim áttum við eftir að elda og sinna okkur og stundum var ekki sofið meira en tvo þrjá tíma á nóttu og þá vorum við aftur mætt í verksmiðjuna að morgni. Svona leið eitt ár og við vorum orðin eins og uppvakningar,“ segir hann.

Hann segir að þau hafi ákveðið að hætta hjá ISS en eftir að þau eignuðust dætur gátu þau ekki unnið svo mikið. Dætur þeirra eru í dag sex og átta ára gamlar.

„Konan mín fór í barneignarfrí en ég hélt áfram í verksmiðjunni, ég þorði ekki að skipta um starf á meðan fjölskyldan stækkaði. Ég lagði mig fram og bað um launahækkun en því var hafnað í tvígang og eftir fimm ár í karamellunni ákvað ég að söðla um og sótti um starf á bifvélaverkstæði.“

Mariusz sem er lærður kokkur en er mikill áhugamaður um bíla. Hann segir að nóttina áður en hann réði sig á verkstæðið hafi hann lært af Youtube hvernig átti að sjóða saman púströr og hljóðkúta. Hann vann á verkstæðinu í tvö ár en skipti um starf þegar hann sá auglýst eftir manni á steypubíl.

„Ég hef verið hérna í tvö ár og uni mér vel, en ég man hvað ég var stressaður í byrjun, ég reykti 35 pakka af sígarettum þennan mánuð sem ég var að læra á steypudæluna. Skrýtið að hugsa til þess af því núna, gæti ég dælt með lokuð augun. Konan mín er ennþá að vinna í sælgætisverksmiðjuni, hún sækir börnin í leikskólann og skólann eftir vinnu.“

Mariusz segir að fjölskyldan hafi verið heppin í leigumálum á tíma sínum á Íslandi. Þau hafi alltaf verið með sama leigusala sem er eldri íslenskur maður. Hann sé í dag orðinn fjölskylduvinur og hafi meira að segja heimsótt foreldra hans í Póllandi.

Auglýsing

læk

Instagram