today-is-a-good-day

Matthew Perry man ekkert eftir þremur þáttaröðum af Friends

Mörg af eftirminnilegustu augnablikum Chandler Bing úr Friends eru horfin úr minni leikarans Matthew Perry, sem gerði spéfuglinn ódauðlegan.

Perry var á dögunum spurður út í uppáhaldsaugnablikin úr lífi Chandlers og sagði að heilu þáttaraðirnar væri horfnar vegna eiturlyfja- og áfengisfíknar sem hann hefur glímt við í gegnum tíðina.

Á meðal þess sem gerðist í þáttaröðum þrjú til sex er að Chandler endurnýjaði kynnin við Janice, ættleiddi kjúkling með Joey og byrjaði að sofa hjá Monicu.

Perry var gestur í þættinum The Chris Evans Breakfast Show og var einnig spurður hvaða atriði úr þáttunum hann þolir ekki. „Guð minn almáttur,“ sagði hann.

Ég held að svarið sé að ég man ekki eftir svona þremur árum úr þáttunum. Þannig að ekkert af þeim koma til greina. Þetta voru atriði úr þáttaröðum þrjú til sex. Ég var eiginlega út úr heiminum.

Matthew Perry hefur glímt við fíkniefnadjöfulinn í gegnum tíðina og farið í nokkrar meðferðir. Hann fór síðast í meðferð árið 2001 og hefur haldið sér á vagninum síðan.

Auglýsing

læk

Instagram