Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við Bitru

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Bitru að morgni fimmtudagsins 11. janúar hét Oddur Þór Þórisson. Hann var 21 árs gamall og búsettur að Hrafntóftum við Hellu.

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að Flugbjörgunarsveitin á Hellu hafi staðið fyrir fjölmennu minningarkvöldi að kvöldi sama dags, í húsnæði félagsins. Þar komu saman félagsmenn og ungmenni úr Árnes- og Rangárvallasýslum undir handleiðslu séra Elínar Kristjánsdóttur.

Auglýsing

læk

Instagram