Ný auglýsing Pepsi-markanna eftir breskri fyrirmynd: Hvor er betri, Höddi Magg eða David Mitchell?

Fótboltakempan Hörður Magnússon, Höddi Magg, fer á kostum í nýrri auglýsingu fyrir Pepsi-mörkin, sem hefja göngu sína samhliða Íslandsmótinu í fótbolta. Höddi hreinilega æðir um fótboltavöll, fer yfir fyrstu umferðina í Pepsi-deildinni og dritar út úr sér sprenghlægilegum staðreyndum um liðin.

Svo virðist sem markaðsdeild Vodafone hafi fengið hugmyndina frá breska gamanþættinum That Mitchell and Webb Look þar sem grínistinn David Mitchell æðir um fótboltavöll og kynnir umferð í ensku úrvalsdeildinni — líkt og Höddi.

Sjáðu fyrirmyndina hér fyrir neðan

Höddi hefur auðvitað margoft sannað að hann er frábær grínleikari en nú þarf þjóðin að taka afstöðu

Auglýsing

læk

Instagram