today-is-a-good-day

Ölvaður maður gekk berserksgang við Hótel Ljósaland, hálftíma síðar var kviknað í

Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning um að ölvaður maður gengi berserksgang við Hótel Ljósaland, laust fyrir klukkan fimm í morgun. Um hálftíma síðar var tilkynnt um að kviknað væri í hótelbyggingunni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar.

„Laust fyrir kl. fimm sl. nótt var Lögreglunni á Vesturlandi tilkynnt að ölvaður maður gengi berserksgang við Hótel Ljósaland í Dalabyggð og fór lögreglan áleiðis á vettvang,“ segir í tilkynningunni.

Um hálftíma síðar var tilkynnt að kviknað væri í hótelbyggingunni og voru slökkviliðin í Dalabyggð, Strandabyggð og Reykhólahreppi þá kölluð út.

Einn maður var handtekinn á vettvangi grunaður um að hafa kveikt í byggingunni og er hann í haldi lögreglu. Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Vesturlandi. Engir gestir voru í hótelinu þegar kviknaði í byggingunni og enginn slasaðist.

Auglýsing

læk

Instagram