Páll Óskar slær í gegn í Stundinni okkar, aðdáendur keppast við að hrósa honum

Atriðið með Páli Óskari Hjálmtýssyni í Stundinni okkar í gær hefur slegið í gegn. Búið er að horfa á atriðið, sem má sjá hér fyrir neðan, oftar en 30 þúsund sinnum og aðdáendur Palla keppast við að hrósa honum.

Í atriðinu útskýrir Páll Óskar samkynhneigð fyrir konu sem virðist vera skotin í honum en hún er frábærlega leikin af Nínu Dögg.

„Frábært í einu orði sagt,“ segir ein í athugasemdakerfinu á Facebook-síðu Páls Óskars og önnur tekur undir það: „Dásamlegt! Ég mun sjá til þess að mínar litlu skvísur sjái þennan þátt! Takk elsku Palli.“

Sjálfur segist Páll Óskar vera stoltur af þátttöku sinni í þættinum. „Ég hef sjaldan verið jafn stoltur af þáttöku minni í sjónvarpsþætti og í Stundinni Okkar í dag,“ sagði hann á Facebook-síðu sinni.

Hjarta mitt hamaðist í brjóstinu yfir þessu sminkatriði og hér fáið þið að sjá hvers vegna.

Horfðu á atriðið hér fyrir neðan.

Gestur kvöldsins í Stundinni okkar var Páll Óskar. Þátturinn er skemmtilegur og fræðandi. Er ótrúlega stoltur af þessari vinnu og allra þeirra sem tóku þátt. Það er mikilvægt að kenna ungum krökkum virðingu fyrir þeim sem kannski eru ekki alveg nákvæmlega eins og maður sjálfur:)

Posted by Bragi Þór Hinriksson on Sunday, October 18, 2015

Auglýsing

læk

Instagram