Píratar enn með mesta fylgið

Pírat­ar mæl­ast með 32% fylgi. Flokkurinn er því stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn á Íslandi fjórða mánuðinn í röð. Um 36% styðja ríkisstjórnina. Þetta kem­ur fram í nýjum Þjóðar­púlsi Gallup.

Sjá einnig: Fimm ástæður fyrir því að Helgi Pírati er glaðasti hundur í heimi

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn held­ur svipuðu fylgi og und­an­farna mánuði: 24%.

Fram­sókn­ar­flokk­ur og Sam­fylk­ing bæta eru hvor um sig með rúm 12 pró­senta fylgi. Vinstri hreyf­ing­in grænt fram­boð er með 9% fylgi og Björt framtíð rekur lestina, af þeim flokkum sem eru á þingi, með 5%.

Auglýsing

læk

Instagram