Píratar vilja setja upp sérstök Pokéstop á kjörstöðum til að fá ungt fólk til að kjósa

Píratar hafa rætt um að setja upp sérstök kosninga-Pokéstop til að laða ungt fólk á kjörstað í Alþingiskosningunum í haust. Þetta kemur fram á Kjarnanum.

Sannkallað Pokémon-æði er á Íslandi og úti um allan heim. Símaleikurinn Pokémon Go nýtur gríðarlegra vinsælda og hvert sem maður lítur sér Pokémon-þjálfara stunda veiðar.

Sjá einnig: Við fórum út að njósna um Pokémon-þjálfara og gripum fáránlega marga, sjáðu myndbandið

Birgitta Jóns­dótt­ir, þingflokksformaður Pírata, og fleiri samflokksmenn hennar hafa rætt hugmyndina um að láta útbúa sér­stök Poké­stop á kjörstöðum í haust. „[Það] væri frábært ef flokkarnir kæmu sér saman um að borga fyrir svona tálbeitur til að lokka ungt fólk á kjörstað,“ segir hún í samtali við Kjarnann.

Það gætu verið Pokestops inni á kjör­stöðum og ég held að þetta gæti verið sniðug leið til að fá ungt fólk til að taka þátt í lýð­ræð­inu sín­u.

Kosn­inga­þátt­taka ungs fólks hefur minnkað undanfarin ár og Kjarninn greinir frá því að ein­ungis helm­ingur fólks á aldr­inum 18 til 29 ára í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inum árið 2014.

Óvíst er hvenær kosningarnar verða en heimildir Nútímans herma að annað hvort 22. eða 29. október komi helst til greina.

Auglýsing

læk

Instagram