Plain Vanilla selur QuizUp: „Erfitt að sjá á eftir barninu okkar til Bandaríkjanna“

Plain Vanilla hefur náð samkomulagi við Glu Mobile um sölu á QuizUp leiknum til bandaríska leikjafyrirtækisins.

Heildarverðmæti kaupsamningsins er í kringum 7,5 milljónir dollara en er að hluta greitt með uppgjöri skulda milli fyrirtækjanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Sjá einnig: Öllu starfsfólki Plain Vanilla sagt upp, fyrirtækið lokar skrifstofu sinni á Íslandi

Í lok ágúst á þessu ári greindi fyrirtækið frá því að það myndi loka skrifstofu sinni á Íslandi og var öllu starfsfólkinu, 36 manns, sagt upp.

„Undanfarið hafa starfsmenn Glu og Plain Vanilla unnið hörðum höndum að yfirfærslu leiksins og hefur teymi frá Glu starfað að því verkefni í höfuðstöðvum Plain Vanilla að Laugavegi 77. Í kjölfar sölunnar munu Plain Vanilla Corp. í Bandaríkjunum og Plain Vanilla á Íslandi hætta rekstri en félögin standa skil á öllum skuldbindingum við starfsmenn sína og lánardrottna,“ segir í tilkynningunni.

Þar er haft eftir Þorsteini B. Friðrikssyni, stofnanda Plain Vanilla:

„Þetta hefur verið ótrúlegt ævintýri. Á annað hundrað Íslendingar hafa fengið mikilvæga reynslu í gegnum störf sín hjá fyrirtækinu sem náði ótrúlega langt í þessum harða iðnaði. Einnig tókst okkur að búa til einn eftirsóttasta og skemmtilegasta vinnustað á Íslandi sem lifa mun í minningu allra þeirra sem þar störfuðu. Ég er mjög þakklátur öllu starfsfólki, samstarfsaðilum og fjárfestum sem komið hafa að þessu verkefni síðastliðin fimm ár. Þó að það sé erfitt að sjá á eftir barninu okkar til Bandaríkjanna þá erum við um leið spennt fyrir því sem er framundan. Þá vona ég að Glu Mobile haldi uppi merkjum QuizUp með sóma og ég hef verið fullvissaður um að það hyggist fyrirtækið gera.“

Auglýsing

læk

Instagram