QuizUp skýtur á samkeppnina á Twitter

Vinsælasti snjallsímaleikurinn í Bandaríkjunum um þessar mundir er spurningaleikurinn Trivia Crack. Leikurinn situr nú í efsta sæti á lista App Store yfir vinsælustu fríu öppin.

Trivia Crack var gefinn út í október árið 2013, viku eftir að íslenska fyrirtækið Plain Vanilla sendi frá sér QuizUp, sem sló rækilega í gegn.

Ný útgáfa er væntanleg af QuizUp snemma á þessu ári en á meðan unnið hefur verið að henni virðast vinsældir Trivia Crack aukast. Leikurinn er þó talsvert frábrugðinn QuizUp, þó hann snúist í grunninn um að svara spurningum.

Og samkeppni er skemmtileg:

Þarna sést QuizUp skjóta á samkeppnina á Twitter nú í byrjun árs. Trivia Crack hefur ekki ennþá svarað.

Auglýsing

læk

Instagram