Hvað gerir maður þegar Microsoft kaupir af manni fyrirtæki á 2,5 milljarða dala? Nú, kaupir draumahús Beyoncé og Jay-Z.
Myndir af húsinu eru neðar í fréttinni.
Sænski forritarinn Markus Persson greiddi á dögunum 70 milljónir dala í reiðufé fyrir rúmlega 2.000 fermetra glæsivillu í Beverly Hills. Beyoncé og Jay-Z eru sögð hafa skoðað húsið nokkrum sinnum og ekki var hægt að hafna tilboði Persson.
En hver er þessi Persson? Hann var einn af eigendum sænska tölvuleikjafyrirtækisins Mojang sem Microsoft keypti á 2,5 milljarða Bandaríkjadala í september.
Mojang sendi frá sér leikinn Minecraft sem hefur náð mikilli útbreiðsl en í leiknum eru spilaranum gefnar frjálsar hendur til að byggja upp eigin veröld. Meira en fimmtíu milljón eintök hafa selst af Minecraft frá því fyrsta útgáfa tölvuleiksins var gefin út árið 2009.