Saga og Steindu með lúðrasveit í staðinn fyrir sleik

Grínistarnir Saga Garðarsdóttir og Steindi jr. afhentu nokkur verðlaun á Eddunni í kvöld. Frægt varð þegar þó fóru í svakalegan sleik á sviðinu á hátíðinni fyrir tveimur árum en þau höfðu lofað að endurtaka ekki leikinn í ár.

Þau stóðust þó ekki mátið og stálu athyglinni með því að fá lúðrasveit á sviðið þegar eiginmaður Margrétar Einarsdóttur tók við verðlaunum fyrir hennar hönd fyrir búninga ársins í Vonarstræti.

Nútíminn nappaði smá myndbandi af atvikinu. Sorrí, Stöð 2.

Auglýsing

læk

Instagram