Sara Heimis hjólar í Rich Piana og kallar hann lygara: „Hann er með sílikon í rassinum“

Sara Heimisdóttir svaraði Rich Piana, fyrrverandi eiginmanni sínum, fullum hálsi í viðtali í útvarpsþættinum Brennslunni á FM957 í morgun. Hún segist ekki hafa gifst Rich til að fá græna kortið og vísar því á bug að hafa stolið af honum peningum.

Sara og Rich giftu sig í fyrra en í myndbandi sem hann birti á dögunum kom fram að hjónabandið hafi verið ógilt. Rich segir hjónabandið hafa verið á fölskum forsendum vegna þess að Sara giftist honum aðeins til að fá græna kortið í Bandaríkjunum.

Þá sakar hann Söru um að stela af sér peningum. „Ég komst að þessu og trúði því ekki. Ég var að gefa svo mikið, eyða svo miklum peningi og breyta öllu lífi mínu fyrir hana. Ég skildi þetta ekki,“ sagði Rich í myndbandinu.

Í viðtali í Brennslunni í morgun vísaði Sara ummælum Rich til föðurhúsanna. „Þetta er bara eins og maður segir bunch of bullshit,“ sagði hún og bætir við að hann sé ekki allur sem hann er séður.

Í fyrsta lagi stal ég aldrei frá honum og ég myndi aldrei stela frá neinum — það er ekki sú manneskja sem ég er. Þegar maður er giftur, á maður allt saman, svo þetta er í raun algjört bull. Ég sá í þessu myndbandi að þetta var fokking lygari.

Varðandi ógildinguna á hjónabandinu sagði Sara að það sé ekki hægt að ná slíku fram eftir eins árs hjónaband. „Ég er með mína lögfræðinga í þessu og þeir eru búnir að taka ógildinguna til baka — eina sem ég segi við hann er bara up yours!

Hún sagðist hafa orðið orðlaus þegar hún horfði á myndbandið. „Hann segir að ég hafi bara viljað giftast honum fyrir græna kortið. Ég var í skóla í Flórída þegar við kynnumst, og hann biður mig að koma yfir til Kaliforníu og búa hjá sér,“ sagði hún.

„Hann vildi hafa mig með sér allan daginn og vera með honum í því sem hann var að gera. Hann bauð því mér að giftast honum til að hlutirnir yrðu auðveldari. Við létum því verða af brúðkaupinu. Brúðkaupið var þannig séð hans hugmynd.“

Sara sagði að Piana sé mjög óöruggur maður og sagði hann sprauta sílikoni í vöðva sína. „Hann er meira að segja með sílikon í rassinum. Voðalega fínt — eða þannig,“ sagði hún.

„Mikið af því sem hann segir í þessu myndbandi er bara algjör lygi. Núna er hann bara heima hjá sér að hlæja af því að fólk sé í alvörunni að trúa því sem hann er að segja.“

Sara sagðist vera að vera að vinna að eigin myndbandi til að svara Rich á samfélagsmiðlum. „Ég er að gera mitt eigið myndband og þar mun ég segja mína hlið á málinu. Ég mun hafa upptökur sem sýna það að hann var oft að öskra á mig og ég grátandi, alveg mikið, mikið, mikið slæmt,“ sagði hún.

Hlustaðu á viðtalið hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram