Rich Piana tók reglulega fæðubótarefni í nefið fyrir æfingar

Vöðvatröllið Rich Piana tók reglulega örvandi efni eða svokallað „Pre-workout“ í nefið fyrir æfingar. Slík efni eru vel þekkt meðal þeirra sem stunda líkamsrækt en þeim á að blanda í vatn. Það er Vísir.is sem greinir frá þessu eftir eftir bandaríska miðlnum TMZ.

Piana lést fyrr á þessu ári eftir að hafa verið í dái í 18 daga. Töluvert magn stera fundust á heimili Piana eftir að hann var fluttur meðvitundarlaus af heimili sínu í Flórída.

Þegar sjúkraflutningamenn komu á heimili Piana fannst hvítt duft ásamt 20 glösum af sterum. Chanel Jansen, kærasta Piana kannaðist ekki við að hann hefði átt við fíkniefnavandamál að stríða en sagði að hann hafi notast við stera í rúm 20 ár.

Auglýsing

læk

Instagram