Setur fegurðarsamkeppni Bandaríkjanna í hakkavélina

Þáttastjórnandinn John Oliver hittir oftar en ekki naglann á höfuðið í þætti sínum Last Week Tonight á sjónvarpsstöðinni HBO.

Á sunnudaginn tók Oliver fyrir fegurðarsamkeppnina Miss America. Keppnin er ekki bara tímaskekkja að hans mati, heldur segjast aðstandendur keppninar verja gríðarlegum fjármunum í skólastyrki til stúlkna, sem virðist vera hrein og klár lygi.

John Oliver kannaði málið og komst að fullyrðingar keppnishaldara standast ekki. Hann setur keppnina hreinlega í hakkavélina með húmor og staðreyndum í þessu magnaða innslagi:

Auglýsing

læk

Instagram