Skrifborð með aðstöðu til að fá sér blund, samþykkt af George Costanza

Nú er það loksins komið á markað: Skrifborð með innbyggðri aðstöðu til að fá sér blund!

Studio NL frá Grikklandi hefur útbúið skrifborð sem kallast 1.6 S.M. of Life og er með innbyggðri svefnaðstöðu.

Auðvelt er að breyta skrifborðinu í prýðilega svefnaðstöðu þegar kraftblundurinn kallar eftir langan dag á skrifstofunni. Skrifborðið er enn þá á þróunarstigi og við þurfum því að bíða aðeins lengur eftir að það kemur á markað.

enhanced-13025-1443109316-1

Seinfeld-aðdáendur muna eflaust eftir því að George Costanza lét útbúa svipaða aðstöðu undirskrifborðinu sínu. Hann var fyrir vikið alltaf endurnærður í vinnunni þangað til borðið var sagað í tvennt af sprengjuleitarvélmenni.

costanza22f-4-web

Auglýsing

læk

Instagram