Sóli bakaði handa Andra á afmælisdaginn: Andri beygði af þegar hann þreifaði á volgri kökunni

Andri Freyr Viðarsson, útvarpsmaður í Virkum morgnum á Rás 2, er 35 ára í dag. Sólmundur Hólm, skemmtikraftur og félagi Andra í útvarpinu kom vinnufélaga sínum á óvart í tilefni dagsins og bakaði handa honum formköku.

Þau sem fylgja Sóla á Snapchat (soliholm) gátu fylgst með kökunni verða til í morgun en myndband af bakstrinum má sjá hér fyrir neðan.

En er svona yndislegt að vinna með Andra að þú vaknar klukkan hálf átta á afmælisdaginn hans og byrjar að baka köku?

„Reyndar vakna ég yfirleitt um sjö en það er ekki á hverjum morgni sem maður hendir í köku, sem þýðir að Andri er einstakur,“ segir Sóli léttur.

Ég hendi annars reglulega í formkökur. Andri hefur verið mjög áhugsamur um þá iðju mína og stakk einhvern tímann upp á því að hann myndi baka brauð handa mér og ég köku handa honum. Nú bíð ég bara eftir brauðinu.

Þau sem fylgja Sóla á Snapchat hafa tekið eftir því að hann er liðtækur bakari og í morgun fylgdi hann uppskrift sem hann var búinn að útfæra eftir sínu höfði.

„Já, ég hika ekki við að prufa mig áfram og er ekki of trúr uppskriftum, það er gamli skólinn.“

En hvernig tók andri í uppátækið?

„Áður en ég svara því að þá verð ég að lýsa yfir vonbrigðum mínum með það að miðjan í formkökunni, semsagt dökki parturinn féll til botns,“ segir Sóli, grafalvarlegur.

„Það hefur aldrei gerst hjá mér áður og ég klóra mér mikið í hausnum yfir því. Trúlega er það vegna þess að sá hluti uppskritarinnar hefur orðið þettari við það að bæta kakóinu út í.“

Hann bætir svo við að Andri hafi verið mjög hrærður.

„Við föðmuðumst í rúmar 30 sekúndur. Svo þegar hann tók um kökuna og fann að hún var volg, þá beygði hann af. Hann er nefnilega ekki á Snapchat og vissi ekkert hvað var í vændum.“

Sóli færði Andra einnig treyju í afmælisgjöf sem hann segir hafa hitt beint í mark.

„Hún var sérsaumuð fyrir mig í Henson. Þetta er Þróttaratreyja með tvisti, þar sem að hann er búsettur í Laugardalnum og orðinn gallharður Þróttari þá verður hann að eiga treyju.“

Auglýsing

læk

Instagram