Steindi leiddi saman tvo Fóstbræður

Tökur á gamanþáttaröðinni Hreinn Skjöldur standa nú yfir. Steindi Jr. er á bakvið þættina ásamt þeim Ágústi Bent og Magnúsi Leifssyni en þríeykið var einnig á bakvið Steindann okkar.

Steindi fer sjálfur með aðalhlutverk þáttanna ásamt Sögu Garðarsdóttur og Pétri Jóhanni Sigfússyni. Ýmsir aukaleikarar koma fram í þáttunum og í dag mættust þeir Þorsteinn Guðmundsson og Gunnar Jónsson, oftast kallaður Gussi, á tökustaðnum.

Þeir léku einmitt saman í Fóstbræðrum á árum áður sem eru að margra mati bestu grínþættir Íslandssögunnar. Þorsteinn birti þessa mynd af gömlu félögunum á Facebook í dag:

Spurður hvernig var að leika með gamla félaganum svarar Þorsteinn: „Það var eins og við hefðum aldrei skilið.“

Auglýsing

læk

Instagram