Svala Björgvins og Daði Freyr syngja til úrslita

Lagið Paper í flutningu Svölu Björgvinsdóttur og Is This Love í flutningi Daða Freys Péturssonar eru komin áfram í sérstaka úrslitaumferð í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Keppnin fer fram í Laugardalshöll og er í beinni útsendingu á RÚV. Úrslitaumferðin hefst innan skamms.

Símaatkvæði landsmanna og sjö manna alþjóðleg dómnefnd réðu því hvaða tvö lög komust í einvígið. Í úrslitaumferðinni ráðast úrslitin eingöngu með símakosningu.

Þegar einvígið hefst byrjar ný símakosning — atkvæði greidd í fyrri hluta gilda ekki í einvíginu.


Auglýsing

læk

Instagram