Sveppa sagt upp hjá 365

Sjónvarpsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, hefur látið af störfum hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365. Fyrirtækið sagði Sveppa upp störfum í lok sumars en hann hefur starfað hjá 365 síðan árið 2002. Þetta kemur fram á Kjarnanum.

Sveppi segir í samtali við Kjarnann að hann vonist til að vera áfram ráðinn í tímabundin verkefni hjá fyrirtækinu. Hann var á dögunum kynnir á hlustendaverðlaunum 365 og stendur stundum vaktina í þættinum FM95Blö á FM957:

Við skiljum í góðu, enda hefur sambandið okkar verið afar gott í gegnum tíðina. Nú tekur bara eitthvað annað við, en það er ekki þar með sagt að ég birtist ekki aftur á Stöð 2 í framtíðinni, enda skoðar maður allar hugmyndir með opnum huga og þá er sama hvort þær koma frá Stöð 2 eða ÍNN, það er aukaatriði.

Samkvæmt frétt Kjarnans er Sveppi með mörg járn í eldinum. Hann er meðal annars á leiðinni til Úganda ásamt nokkrum fjölskyldum að taka þátt í hjálparstarfi undir yfirskriftinni Act of Kindness.

„Við Bragi, sem hefur leikstýrt Sveppa-myndunum, ætlum í leiðinni að taka upp litla heimildamynd um upplifun íslensku krakkanna af heimsókninni til Úganda,“ segir hann á Kjarnanum.

Auglýsing

læk

Instagram